Ég er fædd í Skagafirði og hef búið úti á landi megnið af ævi minni. Fyrstu 20 árin fyrir norðan, 25 ár á Ísafirði og 12 ár í Hafnarfirði. Ég er mikil félagsvera með stórt tengslanet. Tónlist skipar stóran sess hjá mér og er ég starfandi söngkona.
Ég er gift Jóni Ágústi Björnssyni vélfræðingi og yfirvélstjóra í Noregi. Við eigum tvö uppkomin börn og eitt barnabarn.
Sölu-og þjónustustjóri fyrirtækjaráðgjafar Sjóvá frá 2022-2023
Útibússtjóri Sjóvá á Ísafirði frá 2017-2022
Stýrði fjáröflunum foreldrafélags SH 2006-2016
Setti upp tónlistarsýningar á árunum 2000-2005
Ég er yngst 7 systkina og ólst upp í stórum barnahópi í sveit. Nítján ára fluttist ég til Ísafjarðar þar sem ég hóf störf hjá Sjóvá árið 2000. Á Ísafirði hóf ég einnig söngferil minn og hef sungið á böllum fyrir Vestfirðinga í 35 ár. Ég er mikil félagsvera og er alltaf með fullt af fólki í kringum mig. Hef starfað í íþróttafélögum og verið í stjórnum þeirra frá þvi að ég var unglingur. Síðar tóku börnin við og fylgdi ég dóttur minni sem var landsliðskona í sundi, allan hennar feril.
Þegar ég hóf ég störf hjá Sjóvá á Ísafirði tók ég fljótlega að mér sölumál á Vestfjörðum og fór í söluferðir um fjórðunginn. Árið 2005 fluttist ég suður og fékk mig færða yfir á fjármálasvið þar sem ég vann í eitt ár þangað til ég hóf störf á fyrirtækjasviði 1. apríl 2006. Þar vann ég til ársins 2010 þegar ég tók við starfi viðskiptastjóra á fyrirtækjasviði.
Árið 2017 tók ég við starfi útibússtjóra Sjóvá á Ísafirði. Útibúið er svæðisútibú þannig að ég sá um alla Vestfirði ásamt því að vera sérfræðingur í sjávarútvegi um land allt. Ég hef lært að verkefnastýra innan útibúsins og skipuleggja þannig að allir starfsmenn starfi við það sem þeir eru bestir í. Lært að hrósa og hvetja starfsfólkið áfram, taka starfsmannasamtöl og leysa mál í sátt við starfsfólk og viðskiptavini. Ég hef þurft að segja upp starfsfólki og ég hef ráðið fólk. Ég hef kynnst rekstri og komið að kostnaðaráætlunum . Á 5 árum sem útibússtjóri var iðgjaldaukning 40%.
Hef mikinn áhuga á íþróttum, útiveru og tónlist. Vil hafa mikið af fólki í kringum mig og er fjölskyldan þar fremst.